Vegna fjölgunar á Covid smitum og nýjum sóttvarnarreglum sem tóku gildi í dag og gilda til amk 19.október gildir eftirfarandi í Íþróttahúsinu við Strandgötu:
Foreldrar og forráðamenn mega ekki vera viðstaddir æfingar barna, hvorki sem áhorfendur né þátttakendur.
Opnir tímar í badminton á föstudögum kl.19-20 og sunnudögum kl.13-15 verða aðeins opnir fyrir iðkendur. Foreldrar, systkini og vinir geta ekki komið með þessa dagana.
Iðkendur í badminton og skólaíþróttir skulu nota inngang að framanverðu (sem snýr út að sjónum).
Iðkendur í borðtennis, iðjuþjálfun og dansi skulu nota aðalinngang (sem snýr út að kirkjunni).
Þreksalur í kjallaranum verður lokaður öllum nema skólaíþróttakennslu.
Búningsklefar verða lokaðir fyrir öllum sem fæddir eru 2004 og fyrr. Mælt er með því að allir komi klæddir í íþróttafatnað á æfingar og sleppi því að nota klefa.
Iðkendur eru beðnir um að koma ekki í hús fyrr en 5-10 mínútum fyrir sína æfingu og yfirgefa húsið um leið og henni lýkur.
Allir þurfa að spritta hendur þegar komið er inn í hús og áður en farið er úr húsi.
1 m fjarlægðartakmörk þarf að virða utan badmintonvallanna. Sérstök aðgát skal höfð í anddyri þar sem getur verið þrögt þegar margir eru að koma og fara.
Mjög mikilvægt að allir sem finna fyrir einhverjum einkennum Covid19 haldi sig heima.
Til viðbótar við ofangreint skal tekið fram að sóttvarnarreglur sem BSÍ hefur gert í samráði við yfirvöld eru í fullu gildi í húsinu og hvetjum við ykkur til að kynna ykkur þær vel hér á badminton.is.
Vöndum okkur öll við að fara eftir þessum reglum og sýna almenna skynsemi svo við getum haldið áfram að æfa.
Við erum öll almannavarnir!
Komentáře