top of page
Search

Næstu mót

Nú stendur mótatímabilið sem hæðst og eru eftirfarandi mót framundan sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com


Landsbankamót ÍA - 23.-24.febrúar

Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi Flokkar: U11-U19 A mót - aðeins fyrir þau sem hafa keppt áður Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í öllum greinum í U13-U19 en aðeins í einliðaleik í U11. Keppni hefst klukkan 10 báða dagana. U11 verður á laugardag. Mótsgjöld: Einliðaleikur kr. 2000 - Tvíliða- og tvenndarleikur kr.1500 - U11 kr. 1.000 Skráningu lýkur: Sunnudaginn 17.febrúar


Unglingamót Þórs - 2.mars

Staðsetning: Íþróttamiðstöðin í Þorlákshöfn Flokkar: U9-U19 B og C - Hentar vel fyrir byrjendur - Aðeins opið þeim sem ekki hafa unnið til verðlauna í opnum mótum.

Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í riðlum í U9-U11 þar sem spiluð er ein lota upp í 30. Allir keppendur í þessum flokkum fá þátttökuverðlaun en sigurvegari í hverjum riðli hlýtur aukaverðlaun. Aðeins verður keppt í einliðaleik í U9-U11. Í U13 - U19 verður keppt í einliða- og tvíliðaleik, keppnisfyrirkomulag fer eftir þátttöku og áskilur mótstjórn sér rétt til að sameina flokka ef þátttaka er lítil í einstaka flokkum. Mótsgjöld: 1500 kr í einliðaleik og 1200 kr í tvíliðaleik.

Skráningu lýkur: Sunnudaginn 24.febrúar


Almennt um mót


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.


Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2010 og síðar

U11 - fædd 2008 og 2009

U13 - fædd 2007 og 2006

U15 - fædd 2005 og 2004

U17 - fædd 2003 og 2002

U19 - fædd 2001 og 2000




Commenti


bottom of page