top of page
Search

Næstu mót

Keppnistímabilið stendur nú sem hæst og mörg spennandi mót á dagskrá á næstu vikum. Hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér málið og taka þátt. Upplýsingar um næstu mót vetrarins má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Meistaramót ÍA - 26.-27.október 2024


Staðsetning: Íþróttahúsinu á Vesturgötu Akranesi


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliðaleik. Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik.


Mótsgjöld: 4.000 kr hver grein. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn á reikning BH eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 16.október.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Vetrarmót unglinga - 2.-4.nóvember 2024


Staðsetning: Í húsum Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, Gnoðarvogi 1 , Reykjavík


Dagsetning: 2. - 3. nóvember 2024.


Flokkar og keppnisfyrirkomulag: U13-U19. Keppt verður í einliðaleik og tvenndarleik í getuskiptum riðlum. Mótið hentar því bæði fyrir lengra og styttra komna. Allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og geta verið teljarar hjá öðrum, þau sem ekki eru komin með það á hreinu ættu að bíða eftir næsta móti. Mótið hefst báða dagana klukkan 10:00 og verður frekari dagskrá ákveðin eftir að skráningu lýkur.


Mótsgjöld: 2.500 kr fyrir einliðaleik og 2.000 kr fyrir tvenndarleik.

Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 23.október kl 12:00.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Íslandsmót öldunga - 8.-9.nóvember 2024


Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu


Flokkar: Keppt verður í A og B getustigi í eftirfarandi flokkum karla og kvenna í einliða-,

tvíliða- og tvenndarleik:

  • 35-44 ára (fædd 1989-1980)

  • 45-54 ára (fædd 1979-1970)

  • 55-64 ára (fædd 1969-1960)

  • 65 ára og eldri (fædd 1959 og fyrr)


Öllum er frjálst að skrá sig í A-getustig.


Í B-getustig má ekki skrá sig ef:

  • Leikmenn hafa orðið íslandsmeistarar í A-flokki/1.deild.

  • Leikmenn hafa verið færðir upp í efstu deild þ.e. meistaraflokk þegar það var og hét á einhverjum tímapunkti.

  • Leikmenn hafa unnið sig upp í Úrvalsdeild samkvæmt styrkleikalista á einhverjum tímapunkti.


Einnig verður opinn trimmflokkur fyrir 35 ára og eldri. Það fer eftir skráningu hvort honum verður eitthvað skipt upp eftir aldri. Miðað er við að þeir sem almennt eru að keppa á mótum skrái sig frekar í B-getustig en í trimmflokk.


Keppnisfyrirkomulag: Stefnt er að því að spila í riðlum þannig að allir fái amk 2 leiki í hverri grein en það fer eftir þátttöku hvernig það raðast. Áætlað er að keppni hefjist klukkan 17:00 á föstudaginn 8.nóvember og 9:00 laugardaginn 9.nóvember.


Mótsgjöld: 5.000 kr fyrir einliðaleik og 4.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Mótsgjöld þarf að leggja inná reikning BH eigi siðar en á mánudegi eftir mótið: 0545-26-5010, kt. 501001-3090


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 30.október.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Sportabler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


Nýtt keppnisfyrirkomulag verður á unglingamótum í vetur. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2024-2025 U9 - fædd 2016 og síðar U11 - fædd 2014 og 2015 U13 - fædd 2012 og 2013 U15 - fædd 2010 og 2011 U17 - fædd 2008 og 2009 U19 - fædd 2006 og 2007



コメント


bottom of page