top of page
Search

Næstu mót

Updated: Feb 15, 2022

Keppnistímabilið í badminton er nú komið á fullt aftur eftir smá covid hlé. Hvetjum keppnisglaða til að skrá sig innan uppgefins skráningarfrests. Nánari upplýsingar um dagskrá vetrarins og mót almennt má finna neðst í þessari frétt.


"Seinkað" Jólamót trimmara - 20.febrúar 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Trimmflokkur - Opið fyrir badmintontrimmara 18 ára og eldri


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í tvíliðaleik. Leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Keppni hefst klukkan 11:00.


Mótsgjöld: 3.000 kr á mann.


Skráning: Skráning fer fram á staðnum.


Unglingamót Þórs - 26.febrúar 2022 - AFLÝST


Unglingamóti Þórs sem átti að fara fram í Þorlákshöfn 26.febrúar hefur því miður verið aflýst. Keppt verður í bæði A og B flokkum unglinga á Landsbankamót ÍA 5.-6.mars og því tilvalið að fara á það í staðinn.


Óskarsmót KR - 26.-27.febrúar 2022


Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól


Flokkar: Úrvalsdeild, 1.deild og 2.deild fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri (hægt að sækja um undanþágu fyrir mjög vana U15 spilara).


Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum og flokkum. Aukaflokkur í einliðaleik í 1. og 2.deild.


Mótsgjöld: 3.000 kr á mann í hverja grein.


Skráningu lýkur: Föstudaginn 18.febrúar kl.12:00.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.


Landsbankamót ÍA - 5.-6.mars 2022


Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi (ath. hnetufrítt íþróttahús)

Flokkar: U11-U19 - Keppt í bæði A og B getustigi í einliðaleik í U13-U19, B fyrir þau sem ekki hafa unnið til verðlauna á opnum mótum og A fyrir aðra. Ekki getuskipt í tvíliða- og tvenndarleik. Aðeins keppt í einliðaleik í U11, þar verður ekki getuskipting.


Keppnisfyrirkomulag: Mótið hefst klukkan 9:00 báða dagana en dagskrá verður ákveðin eftir að skráningu lýkur. Þó er ákveðið að U11 keppir á laugardagsmorgninum.


Mótsgjöld: 2.000 kr fyrir einliðaleik og 1.800 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik. 1.500 kr fyrir einliðaleik í U11


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 24.febrúar.


Deildakeppni BSÍ - 11.-13.mars 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvalsdeild, 1.deild og 2.deild fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri (hægt að sækja um undanþágu fyrir mjög vana U15 spilara).


Keppnisfyrirkomulag: Íslandsmót fullorðinsliða. Þjálfarar BH reyna að koma öllum sem vilja vera með í lið en það veltur á þátttöku hvernig það raðast.


Mótsgjöld: 4.000 kr á mann


Skráningu lýkur: Föstudaginn 11.febrúar.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram í Sportabler eða með tölvupósti á bhbadminton@hotmail.com.



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2021-2022 U9 - fædd 2013 og síðar U11 - fædd 2011 og 2012 U13 - fædd 2009 og 2010 U15 - fædd 2007 og 2008 U17 - fædd 2005 og 2006 U19 - fædd 2003 og 2004




Comments


bottom of page