Framundan eru tvö barna- og unglingamót sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Unglingameistaramót TBR - 1.-2.febrúar 2025
Staðsetning: TBR húsunum við Gnoðarvog
Dagsetning: 1.-2.febrúar 2025
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: U13-U19. Keppt verður í öllum greinum á þessu móti. Keppnisfyrirkomulag er öðruvísi á þessu móti en síðustu mótum þar sem hópur Færeyinga tekur þátt í mótinu. Ekki skipt í flokka eftir getustigi og því aðeins fyrir vana keppniskrakka.
U13-U15 = Útsláttur í einliðaleik þar sem þeir sem tapa fyrsta leik fara í aukaflott. Hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik.
U17-U19 = Keppt er í riðlum í einliðaleik. Hreinn útsláttur er í tvíliða- og tvenndarleik.
Allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar, hafa keppt áður, treysta sér að mæta erfiðum andstæðingum og vera teljarar hjá öðrum. Þau sem ekki eru komin með það á hreinu ættu að bíða eftir næsta móti sem verður hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ 15.-16.febrúar.
Athugið: Mótshaldarar ætlast til að allir keppi í sínum aldursflokki.
Tímasetning mótsins verður birt í síðasta lagi fimmtudaginn 30.janúar.
Mótsgjöld:
3.000 kr fyrir einliðaleik.
2.500 kr fyrir tvenndarleik.
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 23.janúar.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Unglingamót Aftureldingar og ÍGF - 15.-16.febrúar 2025
Staðsetning: Íþróttamiðstöðin að Varmá við Skólabraut í Mosfellsbæ.
Dagsetning: 15.-16.febrúar 2025
Flokkar og keppnisfyrirkomulag: U9-U19 - Hentar fyrir öll getustig
U9 og U11 = Keppt í einliðaleik í geturöðuðum riðlum
U13-U19 = Keppt í einliða og tvíliðaleik í geturöðuðum riðlum
Allir þátttakendur þurfa að þekkja vel reglurnar og treysta sér að vera teljarar hjá öðrum. Skipt í riðla eftir getustigi og því hentar mótið fyrir bæði byrjendur og lengra komin.
Mótsgjöld:
3.000 kr fyrir einliðaleik 2.500 kr fyrir tvíliðaleik.
Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 6.febrúar.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð í Sportabler eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
Nýtt keppnisfyrirkomulag verður á unglingamótum í vetur. Ekki verða nein sérstök A og B mót eins og þekktist áður heldur verða öll mótin nema tvö spiluð í geturöðuðum riðlum. Sjá nánar með því að smella hér.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2024-2025 U9 - fædd 2016 og síðar U11 - fædd 2014 og 2015 U13 - fædd 2012 og 2013 U15 - fædd 2010 og 2011 U17 - fædd 2008 og 2009 U19 - fædd 2006 og 2007
Comments