Í nóvember eru þrjú fullorðinsmót á dagskrá sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Haustmót trimmara - 5.nóvember 2023
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: .Trimmflokkur fullorðinna. Skilgreining á trimmflokk: Badmintontrimmarar eru 18 ára og eldri leikmenn, sem ekki eru í Úrvals- eða 1.deild og aldrei hafa verið skráðir í Úrvalsdeild/meistaraflokk.
Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í tvíliðaleik þar sem leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Leiknar verða amk 5 umferðir og hefst keppni klukkan 11:00.
Mótsgjöld: 3000 kr á mann sem greitt er á staðnum.
Skráning: Fer fram á staðnum og mælum við með að fólk mæti 30 mín fyrr til að skrá sig og hita upp.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Íslandsmót öldunga - 17.-18.nóvember 2023
Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu
Flokkar: Keppt verður í A og B getustigi í eftirfarandi flokkum karla og kvenna í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik:
35-44 ára (fædd 1988-1979)
45-54 ára (fædd 1978-1969)
55-64 ára (fædd 1968-1959)
65 ára og eldri (fædd 1958 og fyrr)
Öllum er frjálst að skrá sig í A-getustig. Í B-getustig má ekki skrá sig ef:
Leikmenn hafa orðið íslandsmeistarar í A-flokki/1.deild.
Leikmenn hafa verið færðir upp í efstu deild þ.e. meistaraflokk þegar það var og hét á einhverjum tímapunkti.
Leikmenn hafa unnið sig upp í Úrvalsdeild samkvæmt styrkleikalista á einhverjum tímapunkti.
Einnig verður opinn trimmflokkur fyrir 35 ára og eldri. Það fer eftir skráningu hvort honum verður eitthvað skipt upp eftir aldri. Miðað er við að þeir sem almennt eru að keppa á mótum skrái sig frekar í B-getustig en í trimmflokk.
Keppnisfyrirkomulag: Stefnt er að því að spila í riðlum þannig að allir fái amk 2 leiki í hverri grein en það fer eftir þátttöku hvernig það raðast.
Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 8.nóvember.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Meistaramót BH og RSL - 24.-26.nóvember 2023
Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum. Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliðaleik og riðlar í tvíliða- og tvenndarleik.
Mótsgjöld: 4.000 kr í einliðaleik og 4.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090. ATHUGIÐ : 50% afsláttur af mótsgjöldum fyrir þá BH-inga sem aðstoða við uppsetningu og frágang á mottum. Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 16.nóvember Glæsileg verðlaun að venju frá samstarfsaðilum BH og er verðmæti þeirra um 550 þúsund krónur. Spilað verður á keppnismottum félagsins og boðið upp á beina útsendingu og lifandi úrslit á youtube.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2023-2024 U9 - fædd 2015 og síðar U11 - fædd 2014 og 2013 U13 - fædd 2012 og 2011 U15 - fædd 2010 og 2009 U17 - fædd 2008 og 2007 U19 - fædd 2006 og 2005
Comments