Á vef Badmintonsambands Íslands badminton.is má nú finna mótaskrá fyrir árin 2023 og 2024. Hvetjum keppnisglaða til að kíkja á dagskrána og skrá uppáhálds mótin sín í dagatalið.
Vekjum sérstaka athygli á tímasetningum Íslandsmóta vorið 2024 sem margir hafa verið að spyrja um en Íslandsmót unglinga verður 5.-7.apríl 2024 í TBR húsunum og Meistaramót Íslands verður 25.-28.apríl hjá okkur í Strandgötu.
Mót í Strandgötu veturinn 2023-2024 verða eftirfarandi:
Íslandsmót öldunga - 17.-19.nóvember 2023 - 35+ mót
Meistaramót BH og RSL - 24.-26.nóvember 2023 - Fullorðinsmót
Meistaramót Íslands - 25.-28.apríl 2024 - Fullorðinsmót
Bikarmót BH - 10.-12.maí 2024 - U13-U19
Snillingamót BH - 11.-12.maí 2024 - U9 og U11
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Öll sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2023-2024 U9 - fædd 2015 og síðar U11 - fædd 2014 og 2013 U13 - fædd 2012 og 2011 U15 - fædd 2010 og 2009 U17 - fædd 2008 og 2007 U19 - fædd 2006 og 2005
Comments