top of page
Search

Hópferð til Siglufjarðar framundan

Updated: Sep 16

Helgina 29.september til 1.október ætlum við í árlega hópferð til Siglufjarðar þar sem við munum taka þátt í Unglingamóti TBS og hafa gaman saman.


Keppt verður í unglingaflokkunum U11-U19 og verður rútuferð á vegum BH norður. Þetta er alltaf skemmtileg ferð sem við mælum með fyrir alla sem hafa einhverja reynslu af því að keppa. Þetta er eina keppnisferðin á hverjum vetri þar sem er gist og því um að gera að nýta tækifærið.


Dagskrá


Mótið hefst klukkan 9:00 bæði laugardag og sunnudag en nánari dagskrá verður ljós þegar skráningu lýkur. Mögulega verða einhverjir leikir á föstudagskvöld. Reiknað er með brottför frá Strandgötu í kringum hádegi á föstudag og heimkomu um klukkan 22 á sunnudag. Nákvæmari dagskrá verður gefin út þegar skráningar liggja fyrir.


Keppnisfyrirkomulag


Keppt er í bæði A og B flokkum unglinga og því hentar mótið fyrir bæði lengra og styttra komna. Mælum samt ekki með að þau sem aldrei hafa keppt áður fari á mót svona langt í burtu sem fyrsta mót nema vera mjög örugg á reglunum og sjálfstæð. Í einliðaleik verður spilað í riðlum en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Ef lítil skráning er í einhverja flokka er mögulegt að þeir verði sameinaðir öðrum.


Gisting


BH hefur leigt félagsmiðstöðina á Siglufirði fyrir hópinn sem er í göngufæri frá íþróttahúsinu. Allir þurfa að taka með sér vinsæng/dýnu og svefnpoka/sæng.


Kostnaður


Kostnaður á hvern iðkanda er 27.000 kr og er innifalið í því rúta, mótsgjöld, gisting, morgunverður og kvöldmatur föstudag og laugardag. Fyrir utan það þurfa krakkarnir að hafa með sér nesti og vasapening til að kaupa sér annan mat en þann sem er innifalinn. Hægt er að skipta kostnaði upp í nokkrar greiðslur ef þörf er á.


Þjálfarar og fararstjórar


BH sendi þjálfara með hópnum sem jafnframt eru fararstjórar. Ef einhverjir foreldrar vilja bjóða sig fram í fararstjórn mega þeir gjarnan hafa samband við Önnu Lilju í síma 8686361 eða netfangið bh@bhbadminton.is. Foreldrar í fararstjórn sem gista með hópnum greiða hvorki fyrir ferðir né uppihald og fá 50% afslátt af kostnaði síns barns.


Skráning


Foreldrar þurfa að skrá sín börn á þessu skráningarformi eigi síðar en á fimmtudaginn 21.september. Mikilvægt að taka fram ef taka þarf tillit til ofnæmis eða óþols fyrir einhverjum mat eða annað sem er nauðsynlegt fyrir þjálfara að vita um.


Vonum að sem flestir iðkendur geti farið með í þessa skemmtilegu ferð.

Hópur BH-inga á Siglufirði 2021
Hópur BH-inga á Siglufirði 2021

Comments


bottom of page