Reykjavíkurmót fullorðinna fór fram í TBR húsunum um helgina. Keppendur voru um 90 talsins, þar af 31 frá BH. BH-ingar náðu fínum árangri á mótinu, unnu 6 gull og 6 silfur. Una Hrund Örvar náði þeim frábæra árangri að sigra tvöfalt í úrvalsdeild, bæði tvíliða- og tvenndarleik.
Verðlaunahafar BH voru eftirfarandi:
Una Hrund Örvar, 1.sæti í tvíliða- og tvenndarleik í Úrvalsdeild
Brynjar Már Ellertsson, 1.sæti í tvenndarleik í Úrvalsdeild
Natalía Ósk Óðinsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í Úrvalsdeild
Rakel Rut Kristjánsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í Úrvalsdeild
Stefán Logi Friðriksson, 1.sæti í einliðaleik í 1.deild
Katla Sól Arnarsdóttir, 2.sæti í einliðaleik í 1.deild
Jón Víðir Heiðarsson, 2.sæti í einliðaleik í 1.deild
Birkir Darri Nökkvason, 1.sæti í tvenndarleik í 2.deild
Elín Helga Einarsdóttir, 1.sæti í tvenndarleik í 2.deild
Snædís Sól Ingimundardóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í 2.deild
Þórdís María Róbertsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í 2.deild
Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com. Myndir frá mótinu eru á Facebook síðu TBR.
Þökkum Badmintonráði Reykjavíkur fyrir vel skipulagt mót og flottar myndir af keppendum.
コメント