Einliðaleiksmót TBR fór fram í Gnoðarvoginum síðastliðinn föstudag. Keppt var í einliðaleik í úrvalsdeild karla og kvenna. BH-ingurinn Gabríel Ingi Helgason sigraði í karlaflokki og var þetta fyrsti sigur hans í efsta flokki. Gabríel spilaði fjóra leiki á mótinu og fóru þrír þeirra í oddalotu og/eða framlengingu. Úrslitaleikinn sigraði hann í oddalotu 22-20. Óskum Gabríel Inga innilega til hamingju með frábæran árangur.
Fyrsti sigur Gabríels í úrvalsdeildinni
Updated: Sep 18, 2023
Comentários