Ljúflingamót TBR fór fram í Laugardalnum laugardaginn 9.desember. Keppt var í U9 og U11 flokkunum og mætti 21 BH-ingur til keppni. Krakkarnir voru virkilega dugleg og gerðu sitt allra besta. Mörg voru að keppa á sínu fyrsta móti og var gaman að sjá þau eflast með hverjum leik. Öll fengu verðlaunapening í mótslok fyrir góðan árangur og fóru glöð og kát heim. Meðfylgjandi myndir tóku þjálfararnir Anna Lilja og Una Hrund sem voru krökkunum til halds og trausts á mótinu.
top of page
bottom of page
Comments