Um helgina er mikið um að vera hjá BH-ingum. Stór hópur er að fara til Siglufjarðar að keppa á föstudaginn og þá er einnig hópur að fara á landsliðsæfingu í TBR húsinu. Vegna þessa falla æfingar keppnishópa kl.17-19 á föstudaginn niður og opinn tími færist fram um tvær klukkustundir.
Dagskráin í Strandgötu um helgina.
Föstudagur 28.september
kl.12:15 - Siglufjarðarhópur mætir í Strandgötu
kl.12:30 - Rútan fer af stað til Siglufjarðar
kl.16:00 - Æfing hjá U11-U13
kl.17:00 - Opinn tími - allir velkomnir
kl.19:00 - Íþróttahúsið í Strandgötu lokar
Sunnudagur 30.september
kl.10:00 - U9 æfa með foreldrum
kl.11:00 - U11-U13 æfing
kl.12:00 - U15-U19 æfing
kl.13:00 - Opinn tími - allir velkomnir
kl.15:00 - Íþróttahúsið í Strandgötu lokar
Niðurröðun og tímasetningar fyrir Unglingamót TBS á Siglufirði er komin á tournamentsoftware.com. Keppni hefst klukkan 9:00 báða dagana og eru áætluð mótslok um klukkan 15 á sunnudaginn. Þá verður keyrt beint í bæinn og er áætluð koma í Strandgötun um klukkan 22.
Comments