Á 17.júní 2024 verður líkt og undanfarin ár hægt að prófa borðtennis og badminton í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Einnig verður þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina og stór og flottur hoppukastali fyrir utan íþróttahúsið. Þá verður hægt að kaupa rjúkandi heitar vöfflur, kaffi og aðra drykki á BH kaffihúsinu til styrktar keppnisferðum félagsins.
Hvetjum alla til að kíkja við og taka vini og fjölskyldu með sér.
Frábær dagskrá verður í Hafnarfirði á þjóðhátíðardaginn sem hægt er að kynna sér hér á vef bæjarins.
留言